Premium ehf

Þekking & kunnátta

Premium ehf.

Premium ehf. var stofnað árið 2010 til að sjá um iðgjaldainnheimtur frá launagreiðendum fyrir þýska tryggingafélagið Versicherungskammer (Bayern Líf). Premium er staðsett á Siglufirði og hjá Premium starfa 9 starfsmenn. ​Ákveðið var af stofnendum Premium að hafa fyrirtækið staðsett á Siglufirði en á Siglufirði hefur myndast talsverð þekking og kunnátta við iðgjaldainnheimtur.

Fyrirtækið sér um iðgjaldaskráningu, fruminnheimtu og milliinnheimtu vegna lífeyrissjóðsframlaga. Premium notar til þess Jóakim frá Init sem er útbreiddasta lífeyris- og félagakerfi á Íslandi. Í ágúst 2015 varð Premium löggilt innheimtufyrirtæki og fellur þ.a.l. undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins.

Gjaldskrá Premium
Frum- og milliinnheimta: Sbr. “Reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl nr. 37/2009”.​
Umsýslugjald vegna umsóknar um útgreiðslu séreignar vegna COVID-19: 8.900 kr.​
Umsýslugjald vegna greiðslna inn á íbúðarlán og úttekta vegna fyrstu íbúðarkaupa: 9.900 kr. per ár
​Umsýslugjald vegna flutnings á réttindum til annarra vörsluaðila: 0,5 % af upprunalegri fjárhæð, þó aldrei lægra en 5.000 kr.

Útgreiðslur

Útgreiðslur séreignarsparnaðar

Útborgun séreignarsparnaðar getur hafist við 60 ára aldur og skila þarf inn útfylltri og undirritaðri umsókn til sjóðsins auk afriti af skilríkjum.

Útgreiðslur eru greiddar síðasta virka dag hvers mánaðar. Tekjuskattur er dreginn af við útborgun.

Vegna aldurs

Réttur til útborgunar er við 60 ára aldur og er þá heildarinneign laus til útborgunar. Útborgun getur þó aldrei hafist fyrr en tveimur árum eftir að fyrsta greiðsla barst sjóðnum.

​Vegna andláts

Séreignarsparnaður erfist og er laus til útborgunar við andlát sjóðfélaga.. Tekjuskattur er dreginn af séreignarsparnaði við útborgun en ekki erfðafjárskattur. Erfingjar þurfa fyrst að sækja um skiptingu séreignar samkvæmt “yfirliti um framvindu Skipta”  (frá Sýslumanni).

Ef ekki er um lögerfingja er að ræða, rennur séreignarsparnaðurinn inn í dánarbú.

Vegna örorku

Heimilt er að fá séreignarsparnað greiddan fyrir 60 ára aldur ef um örorku er að ræða. Inneign skal þá dreift jafnt á 7 ár, miðað við 100% örorku. Sjóðfélagi sem hefur öðlast rétt til útborgunar vegna örorku getur óskað eftir útborgun með eingreiðslu sé inneign undir ákveðinni viðmiðunarfjárhæð. Viðmiðunarfjárhæðin breytist í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs. Viðmiðunarfjárhæðin er kr. 1.616.427 í janúar 2023.

Útgreiðsla tilgreindrar séreignar

Um greiðslur úr vátryggingarsamningnum vegna tilgreindrar séreignar gilda ákvæði laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 7. grein reglugerðar 391/1998 (um útborgun gilda sömu reglur og fyrir séreignarhlutann í samtryggingarsjóði sjóðsfélaga).

Hafðu samband

Takk fyrir skilaboðin, við munum svara þér eins fljótt og auðið er.
Úps, eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur eða hafðu samband í síma 535-8000

Samskiptaupplýsingar

Fljótleg svörun

Við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er. Skrifstofan okkar er opin frá 09:00 - 16:00. Fyrir brýnar spurningar, hafðu samband í síma 577-2025.