Upplýsingaöryggi hjá Sparnaði
Hér útskýrum við hvernig Sparnaður ehf. tryggir leynd, réttleika og tiltækileika persónuupplýsinga — fyrir starfsfólk, viðskiptavini og samstarfsaðila.
Samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 ber Sparnaði að tryggja viðunandi öryggi persónuupplýsinga. Upplýsingaöryggisstefna þessi lýsir áherslum fyrirtækisins á mikilvægi þeirrar skyldu. Verja þarf persónuupplýsingar hjá fyrirtækinu fyrir öllum ógnum, bæði innri og ytri, og gildir einu hvort þær ógnanir stafi af ásetningi eða gáleysi. Með þessari stefnu geta starfsmenn, viðskiptavinir og aðrir treyst ásetningi Sparnaðar til að standa vörð um öryggi persónuupplýsinga, með tilliti til leyndar, réttleika og tiltækileika.