Skilmálar fjármálaráðgjafar
Sparnaður ehf., kt. 570902-2450, Garðatorgi 7, 210 Garðabær, veitir einstaklingum fjármálaráðgjöf og er eigandi vefsíðunnar www.sparnadur.is. Hér á eftir fara skilmálar þeir sem gilda um fjármálaráðgjöf Sparnaðar. Um þjónustu félagsins gildir einnig persónuverndarstefna og gjaldskrá.
Skilmálar þessir gilda á milli félagsins og viðskiptavina félagsins. Viðskiptavinur er sá aðili sem óskar eftir fjármálaráðgjöf hjá Sparnaði og samþykkir skilmála Sparnaðar.
Skilmálar þessir taka gildi aðila á milli þegar viðskiptavinur samþykkir skilmála á vef félagsins og staðfestir beiðni um að Sparnaður veiti viðskiptavini fjármálaráðgjöf.
Með samþykki skilmálanna samþykkir viðskiptavinur þá vinnslu persónuupplýsinga sem nauðsynleg er til að veita þjónustuna, samkvæmt persónuverndarstefnu Sparnaðar.